Aldís hafsteins nýr formaður sveitarfélaga

Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri í Hveragerði var í dag kjörin nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrst kvenna

Sigraði Aldís með 91 atkvæði eða 62,76% atkvæða.  

Tveir voru í framboði til formanns og hlaut mótframbjóðandi Aldísar, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, 49 atkvæði. Atkvæði greiddu 145. Auðir og ógildir atkvæðaseðlar voru fimm.

Formannskosningu lauk nú kl. 11 í Hofi á Akureyri, þar sem XXXII. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur staðið yfir frá því á miðvikudag. Halldór Halldórsson, formaður sambandsins til síðustu 12 ára, tilkynnti fyrr á þessu ári að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs og varð þá ljóst að það kæmi í hlut landsþingsins nú að kjósa nýjan formann.

Aldís varð bæjarstjóri í Hveragerði árið 2006 og var hún jafnframt fyrsta konan til að gegna því embætti. Áður hafði hún leitt lista Sjálfstæðisflokksins í tvennum sveitarstjórnarkosningum eða frá árinu 1998.

Þá fór einnig fram í morgun stjórnarkjör í stjórn og varastjórn sambandsins.

Formanns- og stjórnarkjör er til fjögurra ára í senn.