\"Alcoa tapar svo miklum peningum á hverjum einasta degi að fyrirtækið er rekið með stórfelldum hagnaði,\" skrifar Guðmundur S. Brynjólfsson í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is - og er skemmt, en þó varla.
\"Lykilinn að þessu fjárhagslega undraverki gróða og taps er lágt raforkuverð á Íslandi sem er að sliga fyrirtækið í bland við óhóflega há laun þeirra sem verstu kjörin hafa,\" skrifar rithöfundurinn áfram og hringsnýst í vitleysunni: \"Eins hefur fyrirtækjaskatturinn sem Alcoa hefur aldrei borgað hér á landi verið fyrirtækinu þungur baggi. Annað er með ágætum þannig að fyrirtækið tapar jafnt og þétt og skilar þannig eigendum sínum ofurháum tekjum og enn hærri arði.\"
Tilefni skrifa Guðmundar er sú fregn að Alcoa hafi aldrei borgað skatta á Íslandi, sem er nú annað en venjuleg fyrirtæki og fólk búa við: \"Þegar þetta er allt lagt saman, ber að hafa í huga að Alcoa er ekki Alcoa því það er bæði móðurfélag og dótturfélag og gott ef ekki þremenningur við Múmínpabba (hann nýtur þó ekki neinna hlunninda af þeim skyldleika). Þetta kann að vera ruglingslegt en skýrist þó um leið og maður gerir sér grein fyrir því hvernig ættir Alcoa Luxembourg liggja,\" skrifar Guðmundur til útskýringar á skattleysi Alcoa.
Og fléttan er líka þessi: \"Pabbi (ekki Múmínpabbi) þess félags er Alcoa International Holdings sem á heima í Delaware í Bandaríkjunum. Móðir þess félags er svo aftur Alcoa Inc. í Pittsburgh sem mun líka vera í Bandaríkjunum. Þetta er ekki flókið og ekki að undra að miklir peningar tapist þegar það þarf að rogast með þá frá Reyðarfirði í gegnum Múmíndal, breyta þeim í rúsínur og selja svo með hagnaði svo tapið geti gagnast eigendum sínum. Það er Alcoa Global Treasury sem kaupir rúsínurnar.\"
Augljóslega þarf Alcoa af þessum sökum ekki að borga skatta á Íslandi, skrifar Guðmundur, jafn hugsi og hann er svona yfirleitt.