Alcoa aldrei greitt skatt hér á landi

Sláandi upplýsingar koma fram um Alcoa á Austurlandi í ellefta tölublaði Stundarinnar sem kom út í gærdag.

Þar rekur Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri í heilsíðugrein að Alcoa á Íslandi hefur frá upphafi starfsemi sinnar hér á landi greitt tæpa sextíu milljarða króna í vexti til Alcoa-félags í Lúxemborg. Starfsemin hér á landi sé rekin með samfelldu tapi. Fyrrverandi ríkisskattstjóri segir málið tilbúið tap og skandal. Forstjóri Alcoa segir fjármagnskostnað skýra tap.

Fjallað er um málið hér.

Segir í úttekt Stundarinnar að á síðasta ári hafi Alcoa á Íslandi, móðurfélag álverksmiðjunnar á Reyðarfirði, sem rekin er undir merkjum Alcoa Fjarðaáls ehf, greitt móðurfélagi sínu í Lúxemborg tæpa 3,5 milljarða króna í vexti.

Kastljós hefur einnig ítrekað fjallað um þá staðreynd að Alcoa hafi aldrei greitt svokallaðan fyrirtækjaskatt hér á landi, enda hafi félagið aldrei skilað hagnaði hér.

„Á sama tíma hafa þó 57 milljarðar króna runnið út úr rekstrinum hér til Lúxemborgar í formi vaxtagreiðslna, sem ekki eru skattlagðar og dragast í leiðinni frá hagnaði starfseminnar hér á landi. Því hefur Alcoa á Íslandi aldrei sýnt hagnað og því ekki greitt af honum skatt.“