Albönsku fjölskyldurnar: takk ísland!

Alþingi veitti í gær albönsku fjölskyldunum tveimur, sem sendar voru nýlega úr landi, íslenskt ríkisfang og þar með er ljóst að tveir langveikir piltar sem tilheyra fólkinu eru á leið til Íslands undir læknishendur.

Xhulia og Kastriot Pepaj, foreldrar Kevi, annars drengsins áttu erfitt með að trúa orðum túlks þegar hann las upp bréf frá Hermanni Ragnarssyni, múrara, þar sem þeim var tilkynnt nú síðdegis að fjölskyldan hefði fengið íslenskan ríkisborgararétt: \"Þetta er besta jólagjöf sem Kevi hefur fengið,“ sagði Xhulia en þau fengu tilkynninguna í gegum Skype. Þau þökkuðu Íslendingum fyrir stuðninginn en þó sérstaklega Hermanni sem straðið hefur sem stytta að baki fjölskyldunni allar götur frá því þau hófu baráttu sína fyrir landvist hér á landi, en Kastroit var í vinnu hjá Hermanni áður en hann var sendur úr landi mep sínu fólki.

Eftir á að hyggja er það ekki síst að þakka ötulli baráttu Hermanns Ragnarssonar fyrir hönd albanska fólksins að málalok eru jafn farsæl og raun ber vitni - og er haft á orði víða í samfélaginu að þar sé jafnvel kominn maður ársins; miskunnsami samverjinn sem vakti þjóð sína til umhugsunar um hvað það merkir að vera manneskja.