Allsherjarnefnd Alþingis hefur borist formleg umsókn þess efnis að albönsku fjölskyldunum tveimur, sem vísað var úr landi fyrir helgi, verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur.
Unnið var að því í allan gærdag að safna saman gögnum til að senda Alþingi fullgilda umsókn fyrir fjölskyldunar. Hermann Ragnarsson, fyrrverandi vinnuveitandi annars föðurins segir í samtali við RÚV í gærkvvöld að þetta hafi verið heil mikið mál. Báðar fjölskyldurnar séu tilbúnar að koma aftur til Íslands.
Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður allsherjarnefndar Alþingis hefur látið hafa það eftir sér að allmargar umsóknir um íslenskan ríkisborgararétt hafi verið til umfjöllunar innan nefndarinnar en engin ákvörðun hafi verið tekin um hverjir verði á þeim lista enda sé þetta yfirleitt með síðustu málum sem Alþingi afgreiði fyrir jólafrí og þingið virðist ekki á leið í slíkt frí á næstunni. Unnur Brá hefur sagt að umsóknirnar fyrir albönsku fjölskyldurnar séu alls ekki of seinar á ferðinni.
Hermann Ragnarsson, sem áður var nefndur, kveðst sannfærður um að fjölskyldurnar séu aftur á leið til Íslands, til frambúðar.