Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ræðir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2020. Frumvarpið var kynnt í síðustu viku og verður formlega lagt fram í dag þegar 150. löggjafarþing Alþingis verður sett.
Hún segir ýmislegt í frumvarpinu til bóta en að því miður sé margt sem er það ekki. „Í frumvarpinu er það enn og aftur staðfest að þetta er ríkisstjórn þeirra ríku og eignamiklu, en ekkert er gert til þess að jafna leikinn og ekkert kemur meira inn í ríkiskassann frá auðmönnum og enn stendur til að lækka bankaskattinn á næstu árum,“ segir Albertína.
„Sannarlega er jákvætt að lækka eigi lægsta skattþrepið og fæðingarorlof verði lengt en flestar koma þessar aðgerðir inn vegna lífskjarasamningsins. Hins vegar er staðreyndin sú að persónuafslátturinn er lækkaður, milliþrepið hins vegar hækkað en fólk með ofurlaun borgar áfram jafn mikið til samfélagins,“ bætir hún við.
Albertína bendir einnig á að framlög til stofnana ríkisins lækki á milli ára, þar á meðal til málefnasviðs háskólanna, framhaldsskóla og þróunarsamvinnu. Hún nefnir einnig eftirlitsstofnanir á við Matvælastofnun, en framlög til hennar lækka töluvert. „Þar þarf að gera mun betur, en það er fátt mikilvægara fyrir atvinnulífið í landinu en að eftirlitsstofnanir landsins séu í stakk búnar til að sinna verkefnum sínum hratt og örugglega, sem því miður hefur verið nokkur misbrestur á.“
„Við umræðu um fjárlög á síðasta þingi lagði þingflokkur Samfylkingarinnar fram skýrar breytingartillögur og það munum við einnig gera við þessi fjárlög. Við viljum verja velferðina. Við viljum leggja meira til skólanna, bæta kjör aldraðra, öryrkja og barnafólks. Við viljum þó ekki síður styðja við atvinnulífið og leggja til að mynda meira í nýsköpun og rannsóknir, lækka tryggingagjaldið og styðja sérstaklega við lítil og meðalstór fyrirtæki,“ segir Albertína einnig.