\"Það er svo rannsóknarefni út af fyrir sig hvers vegna menntamálaráðherra stendur fyrir því að greiða götu fyrirtækis í orkuiðnaði. Er það ekki verkefni iðnaðarráðherra ef einhver ráðherra á að koma að slíku verkefni?\"
Þessari spurningu er varpað upp í Náttfara á vefsvæði Hringbrautar í dag, en þar segir að þessi staðreynd geri hagsmunatengsl Illuga og Orku Energy enn tortryggilegri, en þau hafa verið mjög í brennidepli síðustu vikur og mánuði.
Í pistlinum er spurt hvort ráðherrar á fyrri tíð hafi sagt af sér fyrir minni sakir en nú tíðkast: \"Það er útbreidd skoðun að Illugi Gunnarsson eigi að víkja úr ríkisstjórn vegna þess fjármálasukks sem hér um ræðir,\" skrifar Náttfari og bætir við: \"Hann situr enn og veldur flokki sínum ómældum skaða. Furðu vekur að formaður flokksins skuli ekki hafa vikið honum úr ríkisstjórn eins og Hönnu Birnu á sínum tíma. Er komið betur fram við karlmenn en konur í Sjálfstæðisflokknum? Er brýnna að þær séu með hreinan skjöld heldur en karlarnir? Illugi hefur orðið uppvís að tugmilljónavandræðamáli en fær samt að dvelja áfram í ríkisstjórninni. Sami flokkur knúði Albert Guðmundsson til að víkja út af mistakamáli sem á núverandi verðlagi nemur kr. 500.000. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn lét Albert víkja úr ríkisstjórn árið 1987, en hann var þá iðnaðarráðherra, hafði komið á daginn að starfsmaður í fyrirtæki sem Albert átti hafi látið undir höfuð leggjast að gera skil gagnvart skattlagningu á umboðslaunum sem á núverandi verðlagi námu hálfri milljón króna. Albert átti fyrirtækið en kom á þeim tíma ekki að rekstri þess. Starfsmaðurinn gerði mistökinn en samt var Albert knúinn til afsagnar.\"
Náttfari spyr að svo búnu: \"Er Sjálfstæðisflokkurinn árið 2015 farinn að gera svona miklu minni siðferðiskröfur til ráðherra sinna en tíðkaðist árið 1987?\"