Svo mætti ætla að Ragnar Reykás héldi um stjórnartaumana á Íslandi þessi dægrin ef marka má umskiptin í lífi albönsku flóttafjölskyldunnar sem hafði ekki fyrr verið synjað um landvistarleyfi hér á landi að hún var boðin velkomin til baka.
Samviskubit Alþingis er augljóst, svo og ráðherra innanríkismála - og raunar er umræðan hér á landi meira og minna öll á einn veg; af hverju þennan þvergirðingshátt og lagastagl þegar kemur að því hvort hjálpa eigi langveiku barni.
Nú er berlrga komið í ljós að vilji er innan allsherjarnefndar Alþingis um að veita veikum albönskum dreng og fjölskyldu hans ríkisborgararétt, en hann er haldinn svokölluðum slímseigjusjúkdómi sem er erfðasjúkdómur sem dregur fólk til dauða. Búist er við umsókn frá fjölskyldunni í dag - og virðist augljóst af viðbrögðum þingmanna í allsherjarnefnd Alþingis að mál hennar geti fengið flýtimeðferð, en einmitt þessa dagana er verið að ganga frá lista yfir þá útlendinga sem fá ríkisborgararétt hér á landi.
Fordæmi eru fyrir því að veita fólki ríkisborgararétt sem er ekki statt hér á landi, en þau eru fá. Frægast þeirra mála er þegar skáksnillingnum Bobby Fischer var veitt hér landvist, en einnig má nefna Jóel litla sem staðgöngumóðir á Indlandi gekk með fyrir íslensk hjón.