Albönsku fjölskyldurnar tvær sem nýverið fengu íslenskan ríkisborgararétt eru væntanlegar til landsins eftir hádegi á þriðjudag að sögn Hermanns Ragnarssonar sem hefur staðið að því undanfarið að undirbúa komu þeirra hingað.
Fjölskyldurnar munu fljúga hingað frá London í boði WOW Air og segir Hermann í samtali við mbl.is að allt sé orðið klárt til þess að taka við þeim: \"Íbúðirnar eru klárar en ætli ég skelli þeim ekki á hótel fyrstu nóttina. Svo græja þau íbúðirnar með okkur, en húsgögn og allt saman eru klár,“ segir hann við vefinn.
Þar segir jfanframt að undanfarið hafi staðið yfir söfnun á Facebook til styrktar málefninu að koma fjölskyldunum hingað og koma undir þær fótunum. Bæði fé og munir hafi safnast og muni fjölskyldurnar því hafa úr ýmsu að moða þegar þær komi sér fyrir: \"Það er allt klárt, það er bara að fara á bíl og sækja það,“ sagði Hermann.
Þá sér loks fyrir endann á langri þrautagöngu, eins og segir í fréttinni, en erfiðasta kaflann segir Hermann hafa verið gagnaöflun frá Albaníu í aðdraganda þess að hópurinn hlaut ríkisborgararétt: \"Sakavottorð, fæðingarvottorð, hjúskaparvottorð, bara nefndu það. Svo að þýða þetta allt saman. Þetta var svo stuttur tími nefnilega en það var albanskur þingmaður sem hjálpaði mikið til í því. Svo hef ég haft náttúrlega góða lögfræðinga til að hjálpa mér við þetta,“ segir Hermann á mbl.is.