Hópur fólks vinnur nú að því að koma albanskri fjölskyldu, sem flutt var úr landi aðfaranótt fimmtudags í síðustu viku, aftur heim til Íslands. Fréttablaðið hefur eftir heimildum að fundað verði í dag um fjármögnun og utanumhald verkefnisins með lögmönnum.
Eins og fram kemur í blaðinu hefur brottflutningur fjölskyldunnar vakið reiði í samfélaginu vegna þess að sonur hjónanna Kastrijot og Xhuliu, hinn þriggja ára gamli Kevi, er með slímseigjusjúkdóm. Sjúkdómurinn er lífshættulegur og veldur sýkingum í líffærum. Barnalæknirinn Kristján Dereksson tjáði sig um sjúkdóminn á föstudag, svo sem segir í blaðinu og sagði ólíklegt að Kevi myndi lifa til tíu ára aldurs.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er fjölskyldan komin til Albaníu og líður vel miðað við aðstæður. Þau hafa verið í sambandi við íslenska hópinn og fengið fréttir um þeirra mál þýddar yfir á móðurmálið.
Katrín Oddsdóttir lögmaður segist í samtali við blaðið ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að fjölskyldan sæki um hæli hér að nýju: \"Þau eru ekki búin að klára allar kæruleiðir miðað við það sem komið hefur fram í fjölmiðlum,“ segir hún þar.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er einnig sá möguleiki fyrir hendi að sækja um ríkisborgararétt fyrir fjölskylduna í stað þess að sækja um hæli. Hringbraut hefur greint frá því að allsherjarnefnd Alþingis ætli að taka upp mál albönsku fjölskyldunnar að frumkvæði formanns hennar, Unnar Brár Konráðsdóttur.