Albaníuvextir á íslandi

Það þykir ekki sæma okkur Íslendingum að líta til Albaníu í neinum efnum nema kannski þegarlitið er á forna menningu þar í landi. Samanburður eiganda Klíníkinnar í Ármúla uppskar mikið háð þegar hún sagði að þar væri besta heilbrigðiskerfi í heimi. Þekki það svo sem ekki en allir vita að þar í landi er mikil fátækt og brotið lýðræði. Við sitjum hins vegar á sömu syllu og Albanía þegar kemur að vöxtum á fasteignalánum. Hér eins og þar eru vextir almennt rúmlega 7 prósent. Á öðrum Norðurlöndum eru vexti á þessum lánum á milli 2 to 3 prósent. Upplýsingar um vaxtakjörin má sjá á vefsíðunni http://www.numbeo.com. Aðrir í sjö prósenta flokknum eru lönd eins og Filipseyjar og Bahamas eyjar. Ábyggilega eru forsendur háu vaxtanna ólíkar en hvers vegna við erum í hópi vanþróaðri landa í þessum efnum eru afar vond tíðindi.