Albaníumál: ólöf vill útskýringar

Ólöf Nordal, innanríkisráðherra segir það miður að mál albönsku fjölskyldunnar skyldi ekki hafa ratað inn á borð úrskurðarnefndar um málefni hælisleitenda . Hún skrifaði Útlendingastofnun og Rauða krossinum bréf á föstudag til þess að fá útskýringar á atburðarásinni.
 

Ráðherra segist hafa óskað eftir því að hún fái að flytja Alþingi munnlega skýrslu um málið síðar í vikunni. Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna sem spurði innanríkisráðherra um þetta mál á Alþingi í dag, sagði þar þekkja bæði reglurnar og lögin, en spurði hver væri skyldan Íslendinga sem samfélags þegar kæmi að málum af þessu tagi þar sem lífs barns lægi við. Hún tók sem dæmi að allir hjálpi slösuðu barni á slysstað, jafnvel þótt það leiði til þess að fleiri börnum þurfi að hjálpa í kjölfarið.

Á Vísi er greint frá því að hópur fólks vinni að því með aðstoð lögmanna að koma fjölskyldu Kevis aftur til landsins.