Alauðir vegir um allt land

Hæglætisveður er um allt land og því ætti páskaumferðin að ganga vel fyrir sig.  Samkvæmt heimildum Hringbrautar gengur umferð vel á Vestfjörðum en talið er að um 3000 manns hafi sótt Ísafjörð heim og tekið þátt í skíðavikunni og tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður. En þó aksturskilyrði séu góð er mikilvægt að fara varlega því hálkublettir kunna að leynast á heiðum og hálsum á Vesturlandi og Vestfjörðum.


Það borgar sig heldur að vera fyrr á ferðínni því nú síðdegis gengur í suðvestan átta til fimmtán stig með skúrum. Bjartviðri er spáð á austanverðu landinu. Í kvöld er svo spáð suðvestan tíu til átján vestan til á landinu og él. Enn meira mun svo bæta í vindinn í nótt. Þá fer veður kólnandi og hiti verður um núll til fimm stig í kvöld.