Al-thani fangar skattskyldir á íslandi?

Sú einkennilega staða er komin upp á allir Al-Thani fangarnir á Kvíabryggju, sem eru með lögheimili erlendis og því ekki skattskyldir hér á landi, verða líklega að gjalda skattinum sitt á Íslandi af því þeir eru innlyksa í landinu.

Fjórmenningarnir Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús Guðmundsson, Ólafur Ólafsson og Sigurður Einarsson, allt fyrrverandi stjórnendur og yfirmenn Kaupþings og tengdra félaga afplána nú dóm sinn fyrir þátt sinn í Al-Thani-málinu, sem fjallaði um markaðsmisnotkun og óeðlileg afskipti af hlutabréfavirði bankans. Ljóst er að þeir munu dvelja á Kvíabryggju um árabil, en dómar þeirra eru á bilinu fjögur til fimm og hálft ár.

Fjórmenningarnir eru allir með lögheimili skráð erlendis og bera því enga eða takmarkaða skattskyldu á Íslandi, en það gæti hæglega breyst að því er fram kemur í DV í dag þar eð íslensk skattalög gera ráð fyrir því að allir þeir sem hafa dvalið á Íslandi lengur en í 183 daga yfir tólf mánaða tímabil skuli greiða skatta hér á landi. 

Það er af þessum sökum sem eignamenn hér á landi, sem hafa flutt lögheimili sitt til útlanda, þurfa að yfirgefa Ísland með reglubundnum hætti til að komast hjá því að verða aftur skattskyldir hér á landi. 

Fjórmenningarnir komast hins vegar hvorki lönd og strönd næstu árin. Enda læstir inni - og það í líkast til í skattahelvíti miðað við þá paradís sem skattaskjólin eru kennd við.