Hreiðar Már Sigurðsson og Ólafur Ólafsson, sem báðir sitja inni á Kvíabryggju vegna Al-Thandi-málsins, sitja ekki auðum höndum á bak við lás og slá því þeir áforma mikla uppbyggingu í gistiheimilum og hótelum á Íslandi og á meginlandi Evrópu um þessar mundir.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu nú um helgina sem greinir frá því að fyrirtæki Hreiðars Más, Gistiver, tengist nú rekstri sjö gististaða víðsvegar um landið; þrír þessara staða séu í Stykkishólmi en hinir fjórir eru á Nesjavöllum, Búðum, í Keflavík og Reykjavík. Líklegt er að félagið tengist líka hosteli á Akureyri.
Þá greinir Morgunblaðið einnig frá því að félag sem tengist Samskipum, og þar með eiganda þess, Ólafi Ólafssyni, hyggur á mikla hóteluppbyggingu við Suðurlandsbraut 18 sem verður einn stærsti gististaðurinn í borginni. Ólafur og kona hans, Ingibjörg Kristjánsdóttir tengjast einnig sveitasetrum á Snæfellsnesi og Frakklandi og undirbúa uppbyggingu á síðarnefnda staðnum, en þau hjón eiga lögheimili í Sviss.