Rekstrarleyfi fyrir arnarlax og arctic sea farm ógild

Úrskurð­ar­nefnd auð­linda- og umhverf­is­mál hefur fellt er úr gildi ákvörðun Mat­væla­stofn­unar frá 22. des­em­ber 2017 um að veita Fjarð­ar­lax ehf. rekstr­ar­leyfi fyrir 10.700 tonna árs­fram­leiðslu á laxi í opnum sjó­kvíum í Pat­reks­firði og Tálkna­firði.

Þetta kemur fram í vef nefnd­ar­innar í dag, en úrskurð­ur­inn hefur verið birt­ur. 

Þá hefur einnig verið felld úr úr gildi ákvörðun Mat­væla­stofn­unar frá 22. des­em­ber 2017 um að veita Arctic Sea Farm rekstr­ar­leyfi fyrir 6.800 tonna árs­fram­leiðslu á laxi í opnum sjó­kvíum í Pat­reks­firði og Tálkna­firði.

Málin sem komu inn á borð nefnd­ar­innar byggja á kæru sem saman stóðu að Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands, nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Lax­inn lifi, Akur­holt ehf. og Geit­eyri ehf., eig­endur Haf­fjarð­arár í Hnappa­dal, Ari P. Wendel, eig­andi Kirkju­bóls í Arn­ar­firði og veiði­rétt­ar­hafi í Fífu­staða­dal, Víðir Hólm Guð­bjarts­son, eig­andi Grænu­hlíðar í Arn­ar­firði og veiði­rétt­ar­hafi í Bakka­dal, Fluga og net ehf., rekstr­ar­fé­lag Vatns­dalsár á Barða­strönd, Atli Árdal Ólafs­son, eig­andi hluta veiði­réttar í Hvanna­dalsá, Langa­dalsá og Þverá í inn­an­verðu Ísa­fjarð­ar­djúpi og Varp­land ehf., eig­andi hluta veiði­réttar í Langa­dalsá og Hvanna­dalsá, og veiði­fé­lag Laxár á Ásum.

Nánar hér  á kjarnanum.