Ákvörðun um landspítala óhögguð

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir að ákvörðun um að byggja nýjan Landspítala við Hringbraut, á sama stað og gamli spítalinn, standi óhögguð - þrátt fyrir sjónarmið nýrrar hreyfingar um að spítalinn sé betur kominn annars staðar.
 
Ráðherrann segir að fyrir liggi ítrekuð ákvörðun Alþingis í þessum efnum og hann stefni ótrauður í sömu átt. Þetta kom fram í ítarlegu samtali Páls Magnússonar við ráðherrann í þættinum Þjóðbraut sem frumsýndur var á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld, en þar fór hann yfir allt svið heilbrigðismála sem hafa verið í brennidepli íslenskra þjóðmála um langa hríð vegna niðurskurðar á fjárframlögum til spítalans, langvarandi kjaradeilna og óvissu um framtíðaruppbyggingu og staðsetningu nýs Landspítala.
 
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðhera hefur talað fyrir þeim hugmyndum að reisa nýjan Landspítala fjarri Hringbrautinni, en af orðum Kristjáns Þórs á Þjóðbrautinni í gær má ljóst vera að Sjálfstæðisflokkurinn er þar engan veginn á sama máli.