Ákvörðun rússa er mikil vonbrigði

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra segir það mikil vonbrigði að Rússar skuli hafa sett innflutningsbann á íslenskar vörur, en Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands tilkynnti í dag að Ísland væri á lista fimm landa sem bannað verður að flytja inn vörur til Rússlands.
 
Um eitt þúsund störf og allt að 35 milljarða króna tekjur eru í húfi fyrir Ísland, en Rússland er stærsti markaður Íslands hvað uppsjávarafurðir varðar. 
 

Löndin fimm hafa öll stutt viðskiptaþvinganir Evrópusambandsins gegn Rússum vegna hernaðarins í Austur-Úkraínu og innlimunar Krímskaga.

Gunnar Bragi segir í samtali við RÚV í dag niðurstöðuna vonbrigði: \"Mikil vonbrigði að sjálfsögðu. Við höfum gert allt sem við höfum getað til þess að lenda ekki á þessum lista og við höfum eins og allir vita átt í mjög góðu samtali við Rússa lengi. Við vitum í sjálfu sér ekki hvernig útfærslan verður á þessu, þannig að við þurfum að bíða og sjá. Við munum reyna að afla frekar upplýsinga í dag.“

Möguleikinn á þvingunaraðgerðum í garð Íslendinga hefur verið yfirvofandi um nokkurt skeið. Aðspurður um hvort tilbúin sé áætlun um hvernig brugðist verði við segist Gunnar Bragi lítið vilja tjá sig um það. Rétt sé að líta til annarra ríkja sem orðið hafa fyrir viðskiptabanni Rússa, eins og hann orðar það við miðilinn..