Akureyringar losni við ónæði af flugi

Eins og fréttaskýringar Hringbrautar síðustu daga um alþjóðaflug utan höfuðborgarsvæðisins bera með sér hefur skapast ný umræða hvort líta ætti til Húsavíkur sem áfangastaðar millilandaflugs samkvæmt áætlun, þar sem landfræðilegar aðstæður til lendinga séu betri í Aðaldal, skammt frá Húsavík þar sem fyrir er flugvöllur en á Akureyrarflugvelli.

Fyrir liggur að millilandaflug mun samkvæmt áæætlun hefjast frá Egilsstöðum næsta vor en Akureyringar hafa lent í vandræðum vegna aðflugs og lendinga. Hin háu fjöll í Eyjafirði nálægt flugbrautinni hafa reynst flugmönnum vandamál og eftir að þotu í sólarlandaflugi var hringsólað í 45 mínútur yfir bænum á dögunum en síðan snúið til Keflavíkur, farþegum til mikilla vonbrigða, hefur farið af stað ný umræða hvort rétt sé að horfa til Húsavíkur. Tekið skal þó fram að vonir hafa vaknað um að ný tækni kunni að auðvelda mjög aðflug að Akureyrarvelli eins og Hringbraut hefur fjallað um. Hafa ýmis sjónarmið komið fram eins og lesa má um hér og hér.

Edward Huijbens landfræðingur, doktor við Háskólann á Akureyri sem rannsakað hefur ferðamál af meira kappi en flestir samlandar hans hefur nú blandað sér í umræðuna. Hann býr sjálfur á Akureyri en er jákvæður gagnvart því að ekki sé einblínt á Akureyri þegar millilandaflug er annars vegar.

„Ljóst er að af einhverjum ástæðum eru flugmenn erlendra þotna smeykir við Akureyrarvöll þó þeir hafi öll leyfi,“ segir Edward. „Vandi alþjóðaflugvalla og nærumhverfis þeirra er að halda gestum sem í gegnum þá koma á nærsvæðinu. Með þessu gæti Akureyri elfst sem áfangastaður gesta sem koma inn um Aðaldal.“

Þá bendir Edward á að ónæði af þotum og flugi yrði ekki í byggð með því að millilandaflug yrði í Aðaldal. Einnig yrði samlegð með uppbyggingu við Bakka og efling jaðarsvæðis - frá Eyjafirði séð – myndi styrkja kjarnann.

Fyrir liggur þó að mjög margt þyrfti að gera við flugvöllinn í Aðaldal til að hann gæti tekið á móti fjölda ferðamanna. Það á bæði við um inniiði sem og slitlagið á vellinum og lengd flugbrautar. Arnfríður Jóhannsdóttir hjá Markaðsstofu Norðurlands bendir á að  ferðamenn komi ekki vegna flugvalla heldur fljúgi flugfélög á áfangastaði sem eru eftirsóknarverðir og það er Norðurland allt. \"Aðaldalssvöllur er ekki tilbúinn sem millilandaflugvöllur svo ef uppbygging á að fara fram þar þurfum við að bíða í 10-15 ár geri ég ráð fyrir, því það mun líklega taka langan tíma að fá ríkið til að samþykkja meiri fjárfestingu í flugvöllum hér á meðan ekki hefur tekist að fá arð af fjárfestingunni á Akureyrarflugvelli.\"

Hún bendir á að flugfélög hafi mismunandi áherslur, búnað, þjálfun og tækni. \"Þau flugfélög sem við erum að ræða við varðandi beint flug hafa getu til að lenda hér enda er Akureyrarvöllur góður tæknilega séð, hér er miðstöð sjúkraflugs og öflug flugumferðarstjórn. Nú í haust hafa verið amk 12 leiguflug og flest gengið vel. Aðstæður geta alltaf komið upp þar sem lending er erfið og snúa þarf við en stundum snýst þetta um að vinna með réttu flugfélagi, það skiptir ekki máli hvort flugmaðurinn er íslenskur eða erlendur. Reynum nú að standa saman að því að markaðssetja Norðurland fyrir beint flug með áherslu á þann völl sem er tilbúinn!\"

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, skrifar eftirfarandi í umræðu um fréttir Hringbrautar á byggðaþræði á facebook: \"Það þyrfti að fara í milljarða jarðvegsframkvæmdir á Aðaldalsflugvelli ef Akureryarflugvöllur er ekki erfiður fyrir þá sem hafa til þess þjálfun, ekkert frekar en td Innsbruck, sem bæði Easy Jet og British Airways td fljúga inn á.\" Geta má þess að Þorvaldur er sjálfur flugmaður.

Samadregið: Óvíst er hvort draumur margra Þingeyinga og nú hluta Eyfirðinga sé byggður á sandi eða brothættu hrauni – þ.e. hvort Aðaldalur er vænlegur kostur. Ljóst virðist þó af samtölum Hringbrautar við sveitarstjórnarfulltrúa víða á Norðurlandi að málið verði keyrt áfram til umræðu.

-BÞ