Akureyringar ánægðir með eigin fjárhag

 Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkti í morgun fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 sem verður til fyrri umræðu í bæjarstjórn 3. nóvember nk.

Fram kemur í áætluninni að fjárhagsstaða bæjarins er sterk þrátt fyrir að sveitarfélögum á Íslandi sé þröngt sniðinn stakkurinn um þessar mundir.

Nýgerðir kjarasamningar þyngja enn frekar róðurinn og munu launagreiðslur og launatengd gjöld nema rúmum 55% af rekstrartekjum Akureyrarbæjar. Skuldsetning sveitarfélagsins er hins vegar hófleg miðað við stærð þess og hlutverks sem stærsta þjónustumiðstöð landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Rekstrarafkoma samstæðunnar er áætluð jákvæð um 367,5 milljónir króna og veltufé frá rekstri verður rúmir 2,3 milljaðar króna.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri lýsir ánægju sinni með fjárhagsáætlunina: „Þrátt fyrir býsna þrönga stöðu þá hefur okkur tekist að setja saman fjárhagsáætlun sem lýsir sterkri fjárhagslegri stöðu og styrkri fjármálastjórn Akureyrarbæjar.“

Samkvæmt fjárhagsáætlun verða eignir Akureyrarbæjar rúmir 42 milljarðar í árslok 2016 en skuldir þess með lífeyrisskuldbindingum rúmir 24 milljarðar króna. Einnig kemur fram að fyrirhugaðar eru framkvæmdir fyrir 3,1 milljarð árið 2016, má þar nefna virkjun í Glerá, endurnýjun gervigrass í Boganum, miklar endurbætur á húsnæði Listasafnsins á Akureyri og lok byggingar íþróttahúss Naustaskóla.