Þessa dagana fara fram upptökur í menningarhúsinu Hofi á Akureyri á glænýrri kvikmyndatónlist eftir Atla Örvarsson tónskáld. Tónlistin er sköpuð og flutt fyrir teiknimynd frá Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Gunnar Gunnsteinsson, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar, segir að félagar úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sjái meðal annarra um undirleikinn. Um 50 íslenskir tónlistarmenn koma að upptökunum auk tveggja erlendra tónlistarmanna.
Fyrr á árinu var stofnað félagið ACO í kringum tónlistarsköpun og flutning tónlistar fyrir margvísleg verkefni í Hofi þar sem menningarhúsið nýtist sem risastórt hljóðver. Í sumar var tekin upp tónlist Atla Örvarssonar við stórmynd frá Hollywood, The Perfect Guy. Þá kom Gréta Salóme og tók upp tónlist fyrir Disney-mynd. Þorvaldur Bjarni, tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar, segir að upptökur gangi afar vel í húsinu en meðal annarra verkefna má nefna fótboltalög fyrir félagslið og fleira.
Í viðtali við Hringbraut á dögunum sagði Atli Örvarsson tónskáld að gerð teiknimyndarinnar frá Dubai hefði skapað deilur. Teiknimyndin nefnist Bilal. Hluti Hollywood-leikara sem var boðið að leika í myndinni gat ekki hugsað sér að taka þátt í verkefninu vegna efasemda um múhameðstrú og menningu Miðausturlanda. Atli efast þó ekki um að það hafi verið rétt ákvörðun hjá honum að segja já þegar leitað var til hans um að búa til tónlist fyrir myndina.
„Þetta er eiginlega mynd um víkingasögurnar í arabaheiminum. Hún gerist á þeim tíma þegar múhameðstrú verður til, fjallar um einn af lærisveinum Múhameðs. Eins og við Íslendingar þekkjum er víða neikvæður andi út af heimsmálunum í garð múhameðstrúarmanna, en ég sló til og finnst hreinlega gott að þessi mynd sé gerð. Það er mikilvægt að stuðla að því að brjóta niður hatrið og fordómana og reyndar varð ég frekar hrifinn af skilaboðunum í myndinni sem eru um átök terrorisma og græðgi. Það eru þessir tveir pólar sem fita hvor annan,“ sagði Atli Örvarsson tónskáld þegar Hringbraut sagði fyrst fréttina af þessum ævintýrum öllum.
Atli og fjölskylda bjuggu áður í Los Angeles en fluttu nýverið til Akureyrar á uppvaxtarslóðir tónskáldsins.