Akureyri: frítt á skíði fyrir krakka

Vetrarfrí standa nú yfir í grunnskólum landsins. Að jafnaði kemur mikill fjöldi gesta til Akureyrar í fríum og þarf að sinna þeim en bærinn reynir einnig að huga að þörfum þeirra nemenda sem eru nú heima og fjarri skólastarfi.

Af þessu tilefni hefur bærinn ákveðið að bjóða öllum grunn- og framhaldsskólanemum frítt í sund og á skíði í vetrarfríi grunnskólanna nú í vikunni. Í dag, fimmtudaginn 11. febrúar geta grunn- og framhaldsskólanemar farið í skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli án endurgjalds. Opið verður frá kl. 10-19. Þess ber þó að geta að krakkarnir þurfa að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1.000 kr. í afgreiðslu Hlíðarfjalls.

Á morgun, föstudaginn 12. febrúar, geta grunn- og framhaldsskólanemar farið frítt í Sundlaugina á Akureyri (opið frá kl. 6.45-21.00), Glerárlaug er opin frá kl. 6.30-21.00 og sundlaugin í Hrísey (opið frá kl. 15-18). Frítt verður fyrir sama hóp í sundlaugina í Grímsey laugardaginn 13. febrúar (opið frá kl. 14-16).