Akureyri á toppi lista lonely planet

Akureyri trónir á toppi lista leiðsögubókaútgefandans Lonely Planet yfir 10 bestu staðina til að heimsækja í Evrópu í sumar - og veldur þar mestu staðsetning bæjarins og yfirbragð hans.

Í umsögn Lonely Planet um bæinn við Pollinn segir orðrétt: \"Akureyri er efst á listanum sem besti staðurinn í Evrópu vegna rólyndislegs yfirbragðs staðarins í bland við borgarstemningu auk þess sem gott er að gera út frá bænum þegar kemur að því að njóta sérstöðu Íslands; lítilla sjávarþorpa og fossa, að ekki sé minnst á magnþrungna jökla, eldfjöll og hraunbreiður.\"