Ákalli trillukalla svarað

Stjórnvöld hafa í dag ákveðið að auka við aflaheimildir til strandveiða um fimm hundruð og sextíu tonn. Verða strandveiðiheimildir við þetta tæp tíu þúsund tonn á þessari vertíð.

Með þessari ákvörðun koma stjórnvöld til móts við ákall trillusjómanna um að auka aflaviðmiðun í ágúst þannig að ekki kæmi til stöðvunar strandveiða. Þó er ekki aukið við áður ákveðnar aflaheimildir heldur er hér um að ræða tilflutning.

Heimildir skiptast hlutfallslega jafnt á milli strandveiðisvæða. Þessi viðbót eykur sókn um tvo daga á hverju svæði fyrir sig.

 

Nánar www.stjornarradid.is

[email protected]