„ákaflega sérkennileg en um leið kómísk rök hjá ráðherra“

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fullyrtiá Alþingi í morgun að stuðningsmenn Evrópusambandsaðildar Íslands og talsmenn þeirra sem vilji að Ísland dragi sig út úr EES-samningnum, hefðu tekið höndum saman um að halda rangfærslum á lofti um EES-samninginn. Var hann til svars við fyrirspurnum Þorsteins Víglundssonar, þingmanns Viðreisnar, um hvers vegna þriðji orkupakkinn hefði ekki verið samþykktur á Alþingi. Sagði Þorsteinn málið ríkisstjórninni ofviða, en ekki er staðfest að einhugur ríki innan ríkisstjórnarinnar um málið.

Samt sem áður sagði Guðlaugur Þór að alger samstaða ríkti um málið innan ríkisstjórnarinnar, en gat litlu svarað af hverju málið hefði ekki verið tekið fyrir.

Þorsteinn skrifar um málið á Facebook í dag og segir að Guðlaugur hafi gripið til kómískra og sérkennilegra raka til útskýringar:

„Spurði utanríkisráðherra í morgun hvað dveldi orminn langa við framlagningu þriðja orkupakkans á Alþingi. Ríkisstjórnin áformaði að leggja málið fram á síðasta þingi en gerði ekki og enn bólar ekkert á málinu. Því spurði ég ráðherrann í hverju vandinn fælist. Ráðherra gladdist mjög yfir því að spurningum um utanríkismál væri beint til sín en ekki forsætisráðherra, var að öðru leyti fátt um svör. Við erum því engu nær um hver vandi ríkisstjórnarinnar í málinu sé – en ráðherra sagði samt fulla samstöðu málið þrátt fyrir óljósan vanda.