Ákærður fyrir hatursorðræðu

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hefur gefið út ákæru á hendur manni vegna hatursorðræðu í ummælum við frétt á vef DV. Þar skrifaði hann í nafni eiginkonu sinnar. Ummælin beindust gegn Semu Erlu Serdar.
 

Fjallað er um málið í Fréttablaðinu í dag. Maðurinn ritaði ummælin í júlí 2016 við frétt um að Sema hefði verið sökuð um herferð gegn Útvarpi Sögu og hefði birt hatursfull skilaboð sem henni höfðu borist. „Vona að Sema Erla Serðir farist í næstu hryðjuverkaárás skítmenna af hennar tagi (múslimaskítmenna)“ ritaði maðurinn undir fréttina á vefnum dv.is.

Ummælin voru rituð undir nafni eiginkonu mannsins en hún er leikskólakennari í Vestmannaeyjum. Ummælin voru ekki kærð heldur hafði lögreglan í Vestmannaeyjum frumkvæði að rannsókn og ákæru í málinu, að því er segir í frétt Fréttablaðsins. Aðalmeðferð í málinu fer fram í dag.