Húsvíkingar hafa nú áhyggjur af lyktarmengun vegna uppbyggingar kísilverksmiðju PCC á Bakka.
Nokkrir tugir gesta sóttu kynningarfund Umhverfisstofnunar á Húsavík á fimmtudag þar sem kynnt var tillaga að starfsleyfi fyrir kísilverksmiðjuna. Flestar spurningarnar sneru að hugsanlegri lyktarmengun í ljósi vandkvæðanna frá Helguvík. Fulltrúar frá PCC flutti einnig erindi og sátu fyrir svörum.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út 15. þessa mánaðar enn hafa ekki athugasemdir borist.
Fram kom á fundinum að lyktarmengun vegna kísilvera í Noregi hefur ekki verið vandamál samkvæmt upplýsingum frá norsku umhverfisstofnuninni. Er því að sögn Sigrúnar Ágústsdóttur sviðstjóra hjá Umhverfisstofnun óvarlegt að draga víðtækar ályktanir um lyktarmengun frá kísilverum almennt út frá starfsemi Sameinaðs Silikons.
Verksmiðja PCC stendur um 1.600 metra frá nyrstu húsum Húsavíkur.