„Grái herinn er bara fólk sem hefur áhuga á því að koma á einhverju réttlæti. Þetta er fólk sem er komið á þriðja og jafnvel fjórða æviskeiðið. Þessi fallega hugsjón um áhyggjulaust ævikvöld hefur alls ekki á okkar velferðartímum komist til framkvæmda. Hún er mýta og auðvitað draumsýn.“
Viðar Eggertsson leikari, leikstjóri, leikhúsmaður og verkefnastjóri hjá Gráa hernum var í einlægu spjalli við Sigmund Erni í Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld.
Grái herinn telur allt fólk hér á landi sem er komið yfir sextugt. „Þetta er gífurlega stór hópur, þetta er yfir 60.000 manns á Íslandi sem við getum talið í þessum hópi og margt af þessu fólki er ennþá á vinnumarkaði. Þau eiga í vök að verjast með að hreinlega fá atvinnu eða fá bara að vera það sem þau kunna og geta. Við bara búum í einhvers konar æskudýrkunarsamfélagi. Ennþá búum við í því og við erum kannski of sein að bregðast við því að stærri hluti þjóðarinnar á næstu árum verður fólk á þessum aldri,“ segir Viðar.
Hann segir það fáránlegt að nýta sér ekki þetta fólk sem búi yfir mikilli starfsgetu og er búið að afla sér mikillar þekkingar og reynslu. „Af því að við erum aðeins of sein að takast á við hvers konar samfélag við lifum í, hvernig samsetning þjóðarinnar er, erum við að missa af svo miklu ef við ætlum ekki að bregðast við.“
Viðar víkur máli sínu að ellilífeyrisþegum. „Síðan erum við auðvitað með hóp af fólki sem er komið á eftirlaun og verður bara eins og olnbogabörn í samfélaginu, bæði hvað varðar lífsafkomu og virðingu. Okkur vantar að sýna fólki virðingu og sýna því að það hafi skilað ævistarfi og sé verðugt þess að fá að lifa áhyggjulaust ævikvöld.“
Þáttinn í heild sinni er að finna hér: