Áhyggjulaus yfir stöðu samfylkingar

Katrín Júlíusdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, segist sátt við þá ákvörðun sína að hætta á Alþingi. Hún hefur engin áform um endurkomu síðar. Óvíst er hvað hún tekur sér fyrir hendur.

Katrín segist ekki hafa miklar áhyggjur af stöðu Samfylkingarinnar. Hún segist hrifnari af hreyfingum en flokkum og margt sé að gera í fylkingum vinstra megin í stjórnmálunum.

Katrín studdi Magnús Orra Schram til formanns Samfylkingarinnar. Hún segist eigi að síður bera mikið traust til Oddnýjar G. Harðardóttur, nýkjörins formanns Samfylkingarinnar.