Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir áhyggjuefni að yfirdráttarlán fari hækkandi. Þau séu góður mælikvarði á stöðu heimilanna í landinu.
Samkvæmt Hagvísum Seðlabanka Íslands hafa innlán heimilanna haldið áfram að aukast verulega eftir Covid-faraldurinn og hjól hagkerfisins farin að snúast á nýjan leik.
Yfirdráttarlán, sem heimilin greiddu niður jafnt og þétt í Covid, eru hins vegar farin að aukast að nýju.
Fjárfestingastjóri hjá Íslandssjóðum segir þetta geta verið vísbending um að hluti heimila geti átt í vandræðum með að ná endum saman. Það muni þó koma betur í ljós í vetur.
Aðspurður segir Breki í samtali við Fréttablaðið Neytendasamtökin verða vör við að margir félagsmenn þeirra finni illa fyrir aukinni greiðslubyrði vegna vaxtahækkana undanfarið.
Hægt er að lesa umfjöllun Fréttablaðsins í heild sinni hér.