\"Var einhver að segja að ég væri einn, kannski í Þinginu en ekki hjá fólkinu.\"
Þannig hefur þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Ásmundur Friðriksson, færslu sína á facebook þar sem hann deilir niðurstöðu úr könnun Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Spurt var: \"Hvaða skoðun hefur þú á ummælum Ásmundar Friðrikssonar að fara að dæmi Dana og Svía og takmarka komur hælisleitenda til landsins og senda þá til síns heima?\"
73,4% segjast sammála Ásmundi. 21,6% eru ósammála en 4,9% segjast ekki hafa skoðun.
Alls tóku 6400 manns þátt í könnuninni á Bylgjunni sem er óvísindaleg, enda hvorki um slembiúrtak né viðurkennda aðferðafræði marktækra kannana að ræða. Sjálfur hafði Ásmundur hvatt facebook-vini sína til að taka þátt í könnuninni og fagna margir fb-vina Ásmundar mælingunni með þingmanninum.
Eigi að síður hefur niðurstaðan vakið athygli og jafnvel hroll hjá þeim sem staðhæfa að Ámundur sé rasisit: \"Ég var búinn að finna fyrir góðum stuðningi en þetta er framar vonum. Vonandi opnar þessi niðurstaða umræðuna og hún fari úr þeim lítilmótleik sem dunið hefur yfir mig á eðlilegt plan.
Rétturinn til að tjá sig er sigurvegarinn í dag,\" segir Ásmundur Friðriksson á eigin fésbókarsíðu.
Þá hefur þingmaðurinn spurt hvers vegna áhrifakonur innan Sjálfstæðisflokksins hjóli alltaf í hann þegar hann tjái sig um sambærileg mál. Ritari Sjálfstæðisflokksins, þingmenn og ungir sjálfstæðismenn hafa fordæmt málflutning Ásmundar og skoðanir hans.