Áhrifin af komu costco eru ofmetin

Áhrifin af komu smásölurisans Costco til Íslands eru stórlega ofmetin að mati viðskiptablaðamannanna Hafliða Helgasonar og Jóns G. Haukssonar, en þeir eru gestir fréttaskýringaþáttarins Ritstjóranna á Hringbraut í þessari viku. Þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar.

Þeir félagarnir telja að það koma Costco og H & M verði fráleitt jafn mikil kaflaskil í verslunarsögu Íslands og tilkoma Bónuss á sínum tíma, ellegar opnun Kringlunnar nokkrum árum áður og síðar Smáralindar fyrir liðlega fimmtán árum.

Þeir meta það svo að hlutdeilt Costco á smásölumarkaðanum hér á landi verði 4-5%, en þær tölur sýni umfram annað að íslenskir verslunarmenn þurfi ekki að fara á taugum vegna þessarar auknu samkeppni erlendis frá.

Klofningurinn í verkalýðshreyfingunni og ástæða hans og afleiðingar er einnig til tals i þættinum sem frumsýnddur er öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.