Áhrifavaldar telja fyrirsagnir fjölmiðla rannsóknarefni

Áhrifavaldarnir og athafnakonurnar, Gurrý Jónsdóttir, Lína Birgitta Sigurðardóttir og Sólrún Diego, telja íslenska fjölmiðla ekki vilja fjalla um jákvæð mál.

Stöllurnar ræddu um fjölmiðla og vitleysuna í þeimí nýjasta hlaðvarpsþætti þeirra Spjallið.

Gurrý segir fyrirsagnirnar sem koma frá fjölmiðlum séu galnar, „maður veltir því fyrir sér hvað vakir fyrir fólki.“

„Mér finnst mest galið að pæla í því að það er fólk á launum þarna að skrifa einhverjar skíta fyrirsagnir sem meika engan sens.“ segir Sólrún Diego.

Þær stöllur eru sammála um að fyrirsagnir fjölmiðla séu rannsóknarefni.

Þá velta þær jafnframt fyrir sér hvort blaðamenn þurfi að bera fréttir undir ritstjóra eða hvort þeir geti hent út fréttum eftir hentisemi.

Lína Birgitta segir hennar upplifun vera að engin ritstjórn sé við völd á fjölmiðlum.