Bryggjan, þáttur um sjávarútveg ber þess merki að enn er sjómannaverkfall. Ekkert samkomulag er enn og var samningafundi sem hófst klukkan 13, slitið um klukkan 15 án þess að nýr fundur væri boðaður í deilunni. Í fiskbúðum er þó fullt af fiski en miklar verðsveiflur eru á honum. Heimsækjum Ankra í Sjávarklasann og ræðum markaði okkar með sjávarafturðir - líka í ljósi verkfalls.
Ankra er ungt fyrirtæki sem sérhæfir sig í húðvörum og fæðubótarefnum sem unnin eru úr fiskroði. Nú eru vörurnar komnar út í heim og fyrir skemmstu inn í Magasin De Nord í Kaupmannahöfn. Sölvi hitti Hrönn Margrét Magnúsardóttur, framkvæmdastjóra fyrirtækisins í sjávarklasanum við Grandagarð.
Linda skrapp í fiskbúðina hafið í Kópavoginum og athugaði hvaða áhrif sjómannaverkfallið hefur á fiskbúðir. Steinar Bjarki Magnússon, framkvæmdastjórinn hjá Hafinu sagði verðið hafa sveiflast mikið frá því að verkfall hófst 14.des sl. Hins vegar væri fólk með ranghugmyndir um að enginn fiskur væri til í búðinni.
Helgi Anton Eiríksson forstjóri Iceland Seadfood veit meira um fiskmarkaði en flestir, hann ræðir meðal annars um stöðuna á þeim erlendu mörkuðum þar sem íslenskar sjávaraufurðir eru seldar og hvernig lengd sjómannaverkfallsins hefur haft áhrif þar á.