Áhrif útleigu fyrir túrista ógn sveitarfélaga

Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, vill að Samband íslenskra sveitarfélaga ræði áhrif skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis víða um land á sveitarfélög landsins. Það geti ógnað íbúum og skekkt samkeppnisstöðu þar sem skammtímaleiga gefi ekki af sér hefðbundnar tekjur og ógni hefðbundinni íbúabyggð.

Í Vík í Mýrdal er svo komið að 1300 gistirými er þar að finna í þorpi með aðeins 540 íbúa. Sveitarstjórn hefur akveðið að banna útleigu íbúðarhúsnæðis undir skammtímaleigu en mörg dæmi eru undanfarið um að húsnæði hafi verið breytt í því skyni að hagnast á ferðamönnum. Ef enginn býr í húsunum á ársgrunni verður Mýrdalshreppur af miklum tekjum og getur leitt til hnignunar fjárhags og byggðar.

Morgunblaðið sagði fyrst frá banni sveitarstjórnar Mýrdalshrepps en fyrr í vikunni fjallaði Hringbraut um aðgerðir Berlínarbúa sem hafa bannað airbnb í borginni nema húseigandi búi sjálfur í húsnæði sem leigt sé út fyrir ferðamenn og má aðeins leigja út herbergi, ekki heilu íbúðirnar eins og mjög hefur færst í vöxt með ferðamannabombunni hér innanlands og einkum í þéttbýli.