Áhrif stjórna lífeyrissjóða á kjör forstjóra

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins og formaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, er gestur Jóns G. í viðskiptaþætti hans í kvöld. Lífeyrissjóður verslunarmanna er á meðal stærstu hluthagfa í öllum skráðum félögum á Aðallista Kauphallarinnar og sá stærsti í sjö þeirra. Jón fer yfir heita umræðu um laun forstjóra að undanförnu og hversu mikil áhrif stjórnir lífeyrissjóða geta haft á launakjör forstjóra.