Björk Guðmundsdóttir segir að áhrif sín á íslenska tónlist hefðu verið betur metin ef hún væri karlmaður. Hún segist lengst af ekki hafa kunnað við það að stæra sig eða kvarta, en henni finnst nóg komið. „Ég roðna þegar ég segi þetta, en ég ætla að leyfa mér að gera það”, segir hún í viðtali við Óla Palla á Rás tvö.
Hún segir að hún hafi vakið gremju hjá ungum konum sem hafi leitað til hennar, því hún hafi alltaf látið eins og þetta væri ekkert mál. „Kynslóð mömmu minnar var alltaf bálreið og neikvæð. Sem mér fannst gott upp að vissu marki, en mér finnst það líka eyðileggja fyrir þeim,“ segir hún. „Þannig að mín kynslóð var svolítið svona „ókei, látum eins og þetta sé ekkert mál og hættum að væla.““ Hún hafi varið síðustu fjórum árum í að læra að „væla“ aftur á uppbyggilegan hátt, fyrir komandi kynslóðir kvenna, svo vitnað sé beint í frétt RÚV.
Björk segir að hún hafi alltaf fengið hrós fyrir sönginn. Það sama hafi ekki átt við um vinnuna sem liggur að baki tónsmíðunum. „Mér finnst ég ekki hafa fengið kredit fyrir að hafa verið pródúsent á mínum eigin plötum.“
Meira um viðtalið við Björk má lesa hér.