Áhrif lagabreytingar óljós

Í þættinum Afsal, sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld kl. 21.00, verður rætt um breytingar sem nú eru að taka gildi á lögum um fasteignasala. Gestir þáttarins eru þeir Davíð Ólafsson hjá Fasteignasölu Reykjavíkur og Guðbergur Guðbergsson hjá Fasteignasölunni Bær.

Þeir segja enn óljóst hversu mikil áhrif lagabreytingin muni hafa á rekstur og starf fasteignasala, en telja þó báðir að starfsmenn á fasteignasölum muni í auknum mæli fara í löggildingarnám. Lagabreytingarnar hafa meðal annars þau áhrif að lögfræðingar hafa ekki lengur leyfi til að sinna fasteignasölu. Þá breytist það að fasteignasalar hafa ekki lengur einkaleyfi á sölu fyrirtækja. Guðbergur Guðbergsson, segir þó að þau lög hafi ekki verið virt hingað til og afnámið á því leyfi muni því hafa lítil sem engin áhrif hjá fasteignasölum.

Þáttastjórnandi er Rakel Sveinsdóttir og í þættinum verða tvær eignir kynntar. Í næstu viku verður tekinn til umfjöllunar pistill sem Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, birti á dögunum hér á Hringbraut og vakti mikla athygli. Þar spurði Margrét hvort unga fólkið gæti ekki flutt að heiman. Þá verður jafnframt rætt um pistil Eyglóar Harðardóttur, sem mælir jafnvel með því að unga fólkið búi lengur heima og spari við sig í bílakaupum eða fjarskiptanotkun.

Fasteignamálin eru í brennidepli á Hringbraut, öll fimmtudagskvöld klukkan 21.00.