Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur hjá SFA-Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi skrifar grein á vef SFS um kröfu kaupenda íslenskra fiskafurða að þeir hafi sitt að segja um umhverfisþátt veiðanna.
Útvegurinn byggir tilvist sína á því að selja sjávarafurðurðir á bestu erlendu mörkuðunum. Nú er byggt á alþjóðasamningum og lykilorðið er gagnsæi.
Kristján skrifar að til skoðunar koma alls konar mál svo sem áhrif fiskveiða á búsvæði og á viðkvæm vistkerfi. Þar er skoðaður meðalafli sjófugla og sjávarspendýra.
Hvatar til að takmarka áhrif á umhverfið eru til skoðunar.
Eftirfylgni felst meðal annars í úttektum ýmiss konar þar sem skráð gögn um afla og umgengni eru tekin til skoðunar og mats - með eða án vottunar.
Kristján skrifar að við á Íslandi séum lögð af stað í þessa vegferð af nauðsyn og ljóst að ekki verður aftur snúið ef við viljum áfram selja fiskafurðir okkar á bestu mörkuðunum erlendis.
Eina færa leiðin segir Kristján er áfram til aukinnar skráningar og aukins gagnsæis.
Þessi mál eru aldrei einkamál einstakra veiða heldur hafa áhrif á alla og því eru það hagsmunir heildarinnar og krafa að þessir hlutir séu í góðu lagi.
rtá
Nánar www.sfs.is