Afsal: áhorfendur spyrja og fá svör

Áhorfendur geta spurt um fasteignamál með því að senda inn fyrirspurnir til Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þessum fyrirspurnum er síðan svarað í þættinum Afsal, sem frumsýndur er á Hringbraut á fimmtudagskvöldum.

Í kvöld svarar Guðbergur Guðbergsson, löggiltur fasteignasali, nokkrum fyrirspurnum frá áhorfendum. Meðal annars er fyrirspurn frá konu, sem lenti í því að fasteignasali skaut undan greiðslu frá henni til seljanda. Það eru ,,svartir sauðir” í hverri starfsgrein, segir Guðbergur en leggur til nokkur góð ráð til kaupenda, um hvað ber að gera eða varast þegar kemur að greiðslum vegna fasteignakaupa.

Önnur fyrirspurn var vegna fasteignar þar sem húsnæðismál eru í skilum, en annar eigandinn fór í gjaldþrot vegna annarra mála. Slík mál eru ekki óalgengt og þar ber margt að varast. Þá er spurt hvaða áhrif það getur haft, ef seljandi gengur ekki frá afsali og eins hvað er til ráða, ef söluaðili virðist hafa falið ýmsar skemmdir fyrir kaupendum. Má þar nefna bletti á bakvið kommóður eða mislitt parket undir mottum. Praktísku málin eru því rædd í Afsali kvöldsins, sem hefst kl.21.00. Þátturinn er endursýndur kl.23 og um helgar, en umsjónarmaður hans er Rakel Sveinsdóttir.