Áhlaup á fjölda öfgafullra múslima

Franska lög­regl­an hef­ur gert áhlaup á yfir 150 staði þar sem talið er að öfga­full­ir íslam­ist­ar haldi sig frá því á föstu­dags­kvöldið. Varað er við því að von sé á frek­ari árás­um og hef­ur fjöl­mörg­um viðburðum í tengsl­um við loft­lags­ráðstefn­una verið af­lýst.

For­sæt­is­ráðherra Frakk­lands, Manu­el Valls, var­ar við því að í und­ir­bún­ingi séu fleiri árás­ir, ekki bara í Frakklandi ehdl­ur víðar í Evr­ópu á næst­unni, að því er fram kemur í frétt á mbl.is í dag um framkvæmd neyðarlaganna í Frakklandi.

Sam­kvæmt heim­ild­um AFP, sem miðillinn vitnar til, var lagt hald á vopna­búr í Lyon en franska lög­regl­an gerði áhlaup á nokkra tugi staða í nótt, þar á meðal í út­hverfi Par­ís­ar, Bobigny. Þrett­án hús­leit­ir voru gerðar í borg­inni Lyon. Að minnsta kosti fimm voru hand­tekn­ir og heilt vopna­búr hald­lagt. Þar á meðal eld­flug, Kalashni­kov riff­ill, skot­helt vesti, skamm­byss­ur og fleiri vopn.

Í fréttinni segir að einnig hafi verið leitað í húsum í Tou­lou­se þar sem þrír voru hand­tekn­ir. Í Grenoble voru sex hand­tekn­ir hið minnsta og lagt hald á vopn og reiðufé.

Þar sem neyðarástand rík­ir í land­inu þá hef­ur lög­regla aukn­ar heim­ild­ir til aðgerða, svo sem til að hand­taka fólk og halda því án ákæru.