Áheyrnaraðild veitt

Samþykkt var á tíunda samráðsfundi utanríkisráðherra átta þjóða að veita Vestnorræna ráðinu áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu. Vestnorræna ráðið er samstarfsráð þingmanna frá Grænlandi Færeyjum og Íslandi.

Ráðið hefur aukið umsvif sín í málefnum norðurslóða síðustu ár samfara auknu alþjóðlegu vægi norðurslóða. Ráðið hefur því títt kallað eftir auknu vestnorrænu samstarfi um málefni norðurslóða.  

Markmið Vestnorræna ráðsins er að vera samstarfvettvangur þinganna þriggja á Grænlandi Íslandi og Færeyjum. Ráðið starfar að hagmunum ríkjanna þriggja og gætir að auðlindum og menningu á Vestur-Norðurlöndum. Í ráðinu sitja átján þingmenn - sex frá hverju landi.

Í starfi sínu í ráðinu leitast þingmenn við að ná markmiðum sínum með ályktunum og tilmælum til ríkisstjórna og landsstjórna með virkri þátttöku í norrænu samstarfi og samstarfi við aðra aðila innan vestnorræns samstarfs og með samvinnu við norðurskautsstofnanir og samtök. Þetta er merku áfangi því færri komasta að en vilja í Norðurskautsráðinu.  Þessum áfanga var náð í formennskutíð Bandarikjanna. Finnland fer með formennsku í Norðurskautsráðinu næstu tvö ár. 

rtá