Áhersla á fjölda smáíbúða við höfnina

Reykjavíkurborg býr sig undir að auglýsa eftir samstarfsaðilum um uppbyggingu hundruð smáíbúða á eftirsóttum byggingarlóðum við gömlu höfnina í Reykjavík og á svæðinu nokkru austar með ströndinni sem kennt er við Kirkjusand. Ætlunin er að tryggja eins hagstæða félagslega blöndun á báðum svæðunum og nokkur kostur er og forðast einsleitni. Borgarráð fjallaði í morgun um hvernig staðið verði að úthlutun lóðanna en gert er ráð fyrir samstarfi við einkaaðila við uppbygginguna, auk félaga sem reka leigu- og búseturéttarhúsnæði.


Í Vesturbugt við gömlu höfnina er gert ráð fyrir að byggist upp 24 þúsund fermetrar af mannvirkjum á mjög eftirsóttum lóðum. Samkvæmt nýjum drögum að deiliskipulagi fyrir reitinn verða byggðar 165 íbúðir á reitnum sem skiptast í útsýnisíbúðir, almennar íbúðir og raðhús auk leikskóla. Af þessum íbúðum að minnsta kosti 80 íbúðir á vegum Félagsbústaða og samstarfsaðila undir merkjum Reykjavíkurhúsa en meðalflatarmál íbúða í Vesturbugt með geymslu verður 78 fermetrar. Á Kirkjusandsreitnum er gert ráð fyrir um á annað hundrað íbúðum undir merkjum Reykjavíkurhúsa.