Áhættuhegðun fjármálaráðherra

Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar SAF svarar blaðagrein Benedikts Jóhannessonar fjármálaráðherra um fyrirhugaða hækkun á virðisaukaskatti á ferðaþjónustu. Þetta gerir Helga í aðsendri grein sem Kjarninn birtir. Helgi segir að ráðherrann kaus að nefna ekki:

Að ekkert samráð var haft við greinina við áætlanagerð

Að gengið var þvert á stefnu stjórnvalda hvað varðar að efla ferðaþjónustuna um allt land

Að samkeppnishæfni landsins fer þegar versnandi

Að virðisaukaskattur í samkeppnislöndum er almennt 11%

Að áhrif breytinga á skuggahagkerfið er órannsakað

Að erlend ferðaþjónustufyrirtæki eflast enn frekar á kostnað þeirra íslensku þar sem samkeppnishæfni þeirra innlendu veikist

Að ætluðum heildartekjum ríkissjóðs af ferðaþjónustu er stefnt í hættu

Að upphæð ætlaðra tekna ríkissjóðs af skattahækkunum nema tæplega 20 milljörðum króna á ári hvorki meira né minna

Að óskilvirkni skattkerfisins mun aukast til muna

Að greiningu er mjög ábótavant samanber kostnaðar og ábatagreiningu svo eitthvað sé nefnt

Að áætlaðar breytingar eiga að koma til framkvæmda á miðju næsta ári á miðjum sumartíma í ferðaþjónustu

Að sex mánuðum síðar eiga síðustu breytingar virðisaukskattskerfisins að eiga sér stað gagnvart ferðaþjónustufyrirtækjum

Að ferðaþjónustunni er einni ætlað að greiða fyrir allar breytingar á virðiskaukaskattskerfinu í heild sinni

Að tímasetning sé út af fyrir sig afleit

rtá

Nánar www.kjarninn.si  www.sfs.is