VG náðu þeim árangri að mynda stjórn sökum þess að öðrum mistókst.
Þetta má lesa út úr skrifum álitshafa og álitsgjafa á samfélagsmiðlum.
Björn Valur Gíslason er einn þeirra sem birtir álit sitt. Björn Valur rifjar upp andófið innan VG.
Tveir þingmenn VG hafa ítrekað andstöðu sína við myndun þessarar ríkisstjórnar.
Björn Valur segir að erfitt sé að ímynda sér að þessir tveir þingmenn starfi áfram í þingflokki VG.
Öll mál ríkisstjórnarinnar fá umræðu og afgreiðslu í þingflokki VG.
Um þau mál þarf að ríkja trúnaður.
Hér má rifja upp ensks stjórnmálmanns sem sagði að sér virtist oft að menn sem treysta engum séu menn sem enginn treystir en hvort það á hér við skal ósagt látið.
Það er ekki nóg að VG nái árangri. Öðrum verður að mistakast.