Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar, tók saman lista yfir nokkrar stofnanir ríkisins sem munu fá raunlækkun á fjármunum á næstkomandi ári. Á listanum má sjá meðal annars menntaskóla, heilbrigðisstofnanir og háskóla.
„Ég held áfram að rýna í fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar, Svandísar, Bjarna og Lilju. Og ennþá held ég að ýmislegt komi fólki á óvart en núna mun ég einblína á einstaka stofnanir eða þjónustu hins opinbera í nokkrum hnitmiðuðum punktum (og ekki er þetta nú tæmandi listi):“
1. Eftirfarandi framhaldsskólar munu fá raunlækkun á fjármunum á milli ára (en framhaldsskólastigið í heild sinni fær einnig lækkun):
a. Menntaskólinn í Reykjavík
b. Fjölbrautarskólinn í Breiðholti
c. Menntaskólinn á Akureyri
d. Menntaskólinn í Kópavogi
e. Menntaskólinn á Egilsstöðum
f. Menntaskólinn á Laugarvatni
g. Flensborgarskólinn
h. Fjölbraut á Suðurlandi
i. Verkmenntaskólinn á Austurlandi
j. Verkmenntaskólinn á Akureyri
k. Framhaldsskólinn í A-Skaftafellsýslu
l. Framhaldsskólinn í Mosó
2. Fjármagn til hjálpartækja er lækkað
3. Fjármagn til endurhæfingarþjónustu er lækkað
4. Réttindagæsla fatlaðra fær raunlækkun
5. Fjárframlög til verndaðra vinnustaða og í vinnusamninga öryrkja lækka
6. Rekstur Háskóla Íslands fær raunlækkun á næsta ári
7. Rekstur Listaháskólans fær raunlækkun á næsta ári
8. Háskólinn í Reykjavik og Háskólinn á Akureyri fá nánast sömu raunupphæð og í fyrra.
9. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (sjúkrahúsþjónustan) fær raunlækkun milli ára
10. Heilbrigðisstofnun Norðurlands (sjúkrahúsþjónustan) fær raunlækkun milli ára
11. Jafnréttissjóður lækkar
12. Lýðheilsusjóður lækkar
13. Tækniþróunarsjóður og Rannsóknasjóður lækka
14. Sprotasjóður lækkar
15. Markáætlun á sviði vísinda og tækni lækkar
16. Innviðasjóður lækkar
17. Þjóðskjalasafn Íslands lækkar
18. Kvikmyndamiðstöð Íslands og Sinfóníuhljómsveit Íslands fá lækkun
19. Endurgreiðsla vegna kvikmyndagerðar er lækkuð um tæp 30%
20. Barnamenningarsjóður Íslands fær raunlækkun
21. Framlög til Persónuverndar fá raunlækkun
22. Framlög til almennrar lögreglu lækka
23. Þróunarsamvinna fær lækkun
24. Hafró fær lækkun
25. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum og Vatnajökulsþjóðgarður fá lækkun milli ára
26. Skógræktin fær lækkun
27. Greiningar- og ráðgjafarmiðstöð ríkisins (sem varðar m.a. greiningu hjá börnum með einhverfu, ofvirkni o.s.frv.) fær sömu raunfjármuni og í fyrra þrátt fyrir að biðtími sé allt að tvö ár eftir þessari lykilþjónustu.
Ágúst Ólafur bendir svo á að Þjóðkirkjan fái um þúsund milljónir meira en árið áður, ásamt því að veiðileyfagjöldin hafa lækkað um tæp 40% á milli ára.
„En Þjóðkirkjan fær hins vegar hækkun upp þúsund milljónir í þessu fjárlagafrumvarpi á milli ára. Og að sjálfsögðu er búvörusamningurinn upp á 15 milljarða og er til 10 ára, verðtryggður í bak og fyrir. Og í ljósi ofangreindrar upptalningar er einnig mjög fróðlegt að vita að veiðileyfagjöldin hafa lækkað um tæp 40% síðan þessi ríkisstjórn tók við völdum og þá er lækkun bankaskatts og lægsti fjármagnstekjuskattur Norðurlandanna áfram forgangsmál hjá ríkisstjórninni.“