Ágúst Ólafur Ágústsson snýr úr leyfi á fimmtudaginn og sest þá aftur á þing. Hann hefur verið í leyfi frá því í desember. Ágúst tók sér launalaust leyfi og greindi þá frá því að hann ætlaði í áfengismeðferð. Þá ákvörðun tók hann eftir að hafa áreitt kynferðislega blaðamann á Kjarnanum.
Ágúst greinir frá því á Facebook að hann sé að snúa aftur:
„Á morgun lýkur leyfi mínu frá störfum á Alþingi. Það er ekkert leyndarmál að undanfarna mánuði hef ég þurft að endurskoða líf mitt og sækja mér faglegrar aðstoðar við áfengisvanda, sem var meiri en ég hafði áttað mig á. Sú aðstoð sem ég hef fengið frá SÁÁ og fleiri stuðningshópum hefur reynst mér ómetanleg.
Ég hef þurft að horfast í augu við líf mitt, viðurkenna vanmátt minn gagnvart áfengi og vera tilbúinn að þiggja aðstoð annarra. Hjá SÁÁ hefur mér opnast nýr heimur. Markmið þeirra sem leita sér aðstoðar er að verða betri samferðamenn fyrir sína nánustu og samfélagið allt. Hinni eiginlegu meðferð er nú lokið þótt verkefninu ljúki vissulega aldrei.
Ég tek því ekki sem sjálfgefnu að taka aftur sæti á þingi á ný og mun leggja mig allan fram að ávinna mér traust á nýjan leik. Ég brenn enn fyrir því að starfa í þágu samfélagsins og koma góðum málum til leiðar sem stjórnmálamaður. Í raun er ég biðja um annað tækifæri.“
Við minnum á Facebook-síðu Hringbrautar. Þar er að finna áhugaverðar fréttir og þá er ýmislegt spennandi framundan fyrir vini Hringbrautar. SMELLTU HÉR og vertu vinur okkar á Facebook.