Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður stéttarfélagsins Eflingar, segir frásögn varaformanns félagsins, Agnieszku Ewu Ziolkowska, af ýmsum atvikum sem fram fóru innan skrifstofu Eflingar og lýsingar hennar á samskiptum þeirra á milli ekki styðjast við raunveruleikann. Í Facebook færslu sem Sólveig birti, nú fyrir stundu, sakar hún Agnieszku Ewu um fara með rangfærslur og ósannindi í helgarviðtali Fréttablaðsins.
Í færslu sinni hafnar meðal annars lýsingum Agnieszku á atburðarrás sem fór af stað í kjölfar þess að starfsmaður skrifstofunnar sakaði varaformanninn um einelti. Sólveig segir frásögn Agnieszku af þesu máli vera undarlega og veltir fyrir sér hvað standi baki þessum fullyrðingum og skrifar:
„Ég get ekki annað en spurt mig hvort að varaformanni sé sjálfrátt þegar hún tekur ákvörðun um að láta hafa eftir sér ósannindin í blaðaviðtali.“
Í pistli sínum hafnar Sólveig einnig lýsingum Agnieszku á bræðisköstum og fautaskap sem hún hafi beint að henni margsinnis á meðan samstarf þeirra varði. Þvert á móti segist Sólveig hafa komið fram við hana af vinsemd og hlýju.
Um fullyrðingar Agnieszku um að Sólveig hafi farið fram á að sitja alla fundi trúnaðarráðs eftir að hafa sagt af sér formennsku segir Sólveig það ekki vera satt. Hún hafi aðeins óskað eftir því að sitja einn fund, þar sem afsögn hennar yrði rædd. Agnieszka og Ólöf Helga Adolfsdóttir hafi hins vegar hunsað bón hennar.
Þá sakar Sólveig Agnieszku um að ráðast að starfsfólki trúnaðarráðs með svívirðingum í viðtalinu. Viðtalið sýnir að mati Sólveigu sýnir viðtalið að undirstrika að „sýn hennar á félagsstörf og rétt félagsfólks á lýðræðislegum vettvöngum félagsins er einstaklega vanþroskuð, svo vægt sé tekið til orða.“
Svona lýsir Agniezka stjórnarháttum Sólveigar
Í helgarviðtali Fréttablaðsins lýsir Agnieszka Ewa Ziolkowska, reynslu sinni af stjórnunarháttum Sólveigar Önnu, sem einkenndust að hennar sögn af klækjum og bolabrögðum. Í viðtalinu lýsir Agnieszka meðal annars því að erlendu fólki hafi verið raðað á lista framboðs B-listans en eftir sigurinn hafi Sólveig og Viðar Þorsteinsson fljótlega losað sig marga með ýmsum leiðum.
„Þetta var fólkið sem sannfærði mig um að kjósa B-listann og mér leið ömurlega yfir brotthvarfi þeirra. Sólveig lofaði að í stað þeirra kæmu aðrir erlendir aðilar en það ætlaði hún aldrei að efna.“
Því næst var ákveðið að að losa sig við Agnieszku, þegar hún féll í ónáðina hjá Viðari og Sólveigu. Í viðtalinu lýsir aðdragandanum að því sem hófst þegar hún var sökuð um að hafa lagt starfsmann skrifstofunnar í einelti, þrátt fyrir að haga alltaf átt í góðum samskiptum við aðilann sem kvörtunin var sögð frá. Málið var notað af Sólveigu og Viðari sem að sögn Agnieszku „á áttu leynifundi án mín um málið og komust að þeirri niðurstöðu að ég væri sek og fengi framvegis hvorki að sitja fundi deildarinnar né taka þátt í starfseminni.“
Niðurstöður skýrslu sem Streituskólinn skilaði frá sér um málið, voru virtar að vettugi að sögn Agnieszku og segir að Sólveig hafi sagt niðurstöðurnar vera „kjaftæði.“ Agnieszka var í kjölfarið færð til í starfi og sett undir smásjá Sólveigar þar sem hún segist hafa „þurft að fá samþykki frá Sólveigu fyrir öllu sem ég gerði, áður en ég brást við nokkru. Ef ég fékk ekki samþykki frá henni þá reiddist hún undir eins.“