Agla eir ráðin lögfræðingur viðskiptaráðs

Agla Eir Vilhjálmsdóttir hefur tekið við starfi lögfræðings Viðskiptaráðs Íslands en hún hefur starfað hjá Viðskiptaráði frá árinu 2018 sem sérfræðingur á lögfræðisviði auk þess sem hún hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands frá því haustið 2019.

Agla Eir mun sinna lögfræðilegri ráðgjöf gagnvart framkvæmdastjóra og stjórn, umsagnagerð, skýrsluskrifum og fleiri verkefnum tengdum málefnastarfi ráðsins, ásamt því að halda áfram utan um starfsemi Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands. Agla Eir er sérhæfð á sviði alþjóðaviðskipta og gerðardómsréttar.

„Agla Eir hefur starfað hjá okkur síðastliðin tvö ár sem sérfræðingur á lögfræðisviði og aflað sér mikillar þekkingar og reynslu. Okkur er það sönn ánægja að sjá hana taka við sem lögfræðingur ráðsins og halda áfram með þeim drifkrafti sem hún hefur sýnt í sínum störfum,“ segir Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.