Fyrrverandi formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, þeir Þorsteinn Pálsson og Jón Sigurðsson eru gestir Sigmundar Ernis í Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld og rýna í stjórnmálaástandið eins og það blasir við, rífum mánuði fyrir þingkosningar.
Þeir fara ekki einasta yfir stöðu Sigmundar Davíðs og möguleika hans á að komast á þing með nýjan hægrisinnaðan miðflokk heldur og stöðu Framsóknar sem ef til vill er orðinn mun stjórntækari flokkur en hann hefur verið um árabil.
Þeir ræða augljósa eðlisbreytingu á Sjálfstæðisflokknum þar sem einingin á meðal þingmanna hans virðist vera að baki, ólíkt því sem áður var, en stjórnarliðar hans hafi einmitt lýst því yfir berum orðum að þeir myndu fella framlögð fjárlög; slíkt hefði aldrei þekkst á árum áður - og beri vitni um meiri lausatök forystunnar á sínu fólki.
Þeir ræða mögulega stjórn að afloknum kosningum, samstarf VG, Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokks sé þar líklegt, þótt eflaust þurfi þjóðin fremur á að halda frjálslyndri miðju við stjórnvölinn, eins og Þorsteinn orðar það, sem færir fólkinu í landinu þá framtíðarsýn sem það á skilið.
Ritstjórarnir byrja klukkan 21:00 í kvöld.